Vínartónleikar

Menningarfélag Akureyrar

10 January

Ticket prices from

ISK 5,000

Kvennakórinn Embla býður nýja árið velkomið með sannkallaðri Vínarveislu þar sem flutt verða lög úr óperettum, þekktir polkar og sveiflandi vínarvalsar. Meðal þess sem flutt verður má nefna Kampavínssönginn úr Leðurblökunni, Valsasyrpurnar Dóná svo blá, Sphärenklange og Vínarblóð eftir Johann Strauss, Vín borg minna drauma, Nótt í Feneyjum, Radetsky marsinn og hina fjörugu Kampavínskviðu ásamt fleirum þekktum lögum frá blómatíð Vínartónlistarinnar. 

Einsöngvari með kórnum er stórtenórinn Gissur Páll Gissurarson og Salonghljómsveit Akureyrar leikur með. Stjórnandi er Roar Kvam. 

Hefjum árið með bros á vör í ljúfri valsasveiflu, gleðjumst og kætumst og bjóðum nýtt ár velkomið með einstakri tónlistarveislu.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger