© 2025 Tix Ticketing
Bíóhöllin Akranesi
•
3 January
Ticket prices from
ISK 8,000




Nýárstóleikar
Kór Akraneskirkju í samvinnu við Kalman tónlistarfélag Akraness, hefja nýja árið með stæl.
Nýárstónleikar þar sem öllu verður tjaldað til. Á efnisskránni er að vanda sígild Vínartónlist sem kemur öllum í gott skap.
Þá hljóma aríur og dúettar úr vinsælum óperettum í flutningi glæsilegra einsöngvara sem öll hafa fangað hugi og hjörtu okkar Íslendinga.
Einsöngvarar eru: Bjarni Thor Kristinsson bassi, Björg Þórhallsdóttir sópran, Elmar Gilbertsson tenór og Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) sópran.
Konsertmeistari er Sigrún Eðvaldsdóttir.
Stjórnandi: Hilmar Örn Agnarsson
Miðasala á tix.is, og einnig í Bjargi og hjá kórfélögum.

