Páll Óskar & Monika Lokatónleikar

Háteigskirkja

30 November

Ticket prices from

ISK 6,900

Páll Óskar & Monika Lokatónleikar

Þeir sem hafa farið á tónleika með Palla og Moniku hörpuleikara, vita að hlustandinn kemur út betri manneskja á eftir. Þau hafa haldið árvissa jólatónleika undanfarin 23 ár, en nú er komið að tímamótum. Tímarnir breytast og fólkið með. Nú hafa Palli og Monika tekið þá ákvörðun að þessir jólatónleikar í Háteigskirkju verða lokatónleikar þeirra saman. Diddú, systir Palla verður heiðursgestur þeirra þetta kvöld. Á efnisskránni eru jólalög sem Palli og Monika hafa spilað mikið undanfarna tvo áratugi, aðallega af þeirra rómuðu jólaplötu "Ljósin heima" í sérstökum útsetningum fyrir hörpu, strengjasveit og kórinn Huldur undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar.

Páll Óskar & Monika vilja þakka öllum þeim sem hafa mætt á tónleika þeirra undanfarna tvo áratugi, og þau lofa himneskri jólastund í Háteigskirkju á þessum kveðjutónleikum.

Háteigskirkja opnar kl. 16.30 á fyrri tónleikana og kl. 19.30 á seinni tónleikana. Frjálst sætaval. Páll Óskar gengur syngjandi meðal áhorfenda og nándin er mikil þar sem aðeins eru seldir um 300 miðar á hvora tónleika.

Gleðilega hátíð og njótið vel.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger