© 2025 Tix Ticketing
Bæjarbíó
•
14 February
Sale starts
6 November 2025 at 12:00
(in 2 days)




Valentínusardagur á laugardegi. Verðum við ekki að nýta það? Næturpössun jafnvel? Ykkar maður, Jón Jónsson, ætlar alla vega að syngja um ástina þetta kvöld í Bæjarbíói. Er það ekki bara skothelt dæmi? Maðurinn sem semur eiginlega bara lög um konuna sína hlýtur að geta græjað alvöru rómantík fyrir ástsjúka aðdáendur sína. Amerísk hefð segja einhverjir en JJ bjó í Boston svo hann má þetta! Flækjum þetta ekki frekar. Takið daginn frá. Pantið borð. Þið eigið stefnumót með Jóni Jónssyni þann 14. febrúar.
18 ára aldurstakmark.

