© 2025 Tix Ticketing
Hjallakirkja
•
3 December
Ticket prices from
ISK 4,900




Jólatónleikar Kvennakórs Reykjavíkur – Upptaktur að jólum
Mjög margir upplifa að jólin komi eftir að hafa hlýtt á jólatónleika Kvennakórs Reykjavíkur.
Að sjálfsögðu bregðumst við ekki fyrir þessi jól, með tónleikunum Upptakti að jólum. Fastagestir okkar vita að við sláum helst ekki feilnótu, hvorki þegar kemur að söng, dansi eða pínu frumlegheitum. Við bjóðum auðvitað öll hjartanlega velkomin!
Við lofum hátíðlegri stund, fagurri tónlist, frábærri skemmtun og upptakti, Upptakti að jólum. Flutt verða klassísk jólalög, nokkur í nýstárlegum útgáfum og önnur í gamalkunnum.
Stjórnandi Kvennakórs Reykjavíkur er Ágota Joó og undirleik á píanó annast Aladár Rácz. Hver veit nema fleiri góðir undirleikarar sláist í hópinn?
Við hlökkum til að sjá ykkur !!
Miðaverð er 4.900 kr. Sæti eru ónúmeruð.
Tónleikar Kvennakórs Reykjavíkur verða í Hjallakirkju miðvikudaginn 3. desember kl. 20:00. Húsið opnar kl. 19:30

