Jólakötturinn

Freyvangur

6 dates

Ticket prices from

ISK 2,500

Jólakötturinn er frumsamið hugljúft jólaævintýri eftir Jóhönnu S. Ingólfsdóttur. Höfundur byggir söguna á hinum alíslenska jólaketti eins og flestir þekkja hann, en blandar svo inní allskyns sögupersónum sem flestir kannast líka við.

Þegar jólakötturinn fær nóg af því að allir í kringum hann eru alltaf góðir, glaðir og að öllum finnist jólin frábær, ákveður hann að fara að heiman þar sem það er enginn lengur eins og hann.

Hann fer af stað fúll og önugur en á leið sinni upp á fjallið þá hittir hann ýmsar furðuverur sem eru fæstar eins og hann því eins og allir vita þá finnst flestum jólin frábær.

Það að vera frábrugðin öðrum og finnast maður ekki passa inní getur verið flókið, en með vináttu, væntumþykju og kannski smá kurteisi er möguleiki á að finna sinn stað í tilverunni.

Tónlistin í verkinu er létt og skemmtileg og er hún frumsamin fyrir verkið af Eiríki Bóassyni og er þetta þriðja jólabarnaleikritið sem hann semur tónlisti í hjá Freyvangsleikhúsinu.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger