Kaplakriki

28 November

Ticket prices from

ISK 2,900

ICEBOX

Stærsta boxmót ársins á Íslandi ICEBOX verður haldið aftur í níunda sinn föstudaginn 28. nóvember og í heilum sal eins og hefur verið síðustu skipti. Viðburðurinn hefur stækkað hvert sinn og þann 28. nóvember verður heldur betur veisla eins og áður. Samkvæmt mörgum sem þekkja til er líklegt að ICEBOX sér orðinn stærsti staki viðburður í áhugamannahnefaleikum í evrópu. Það hefur selst upp á síðustu viðburði og engin hætta á öðru í þetta skiptið. 

Tímasetningar:

Húsið opnar 18:20 og fyrsti bardagi hefst um kl 19:00, aðalhluti bardaga kvöldsins hefst 20:30 og er í beinni útsendingu á Sýn sport og verður einnig í boði í PPV (Pay Per View).

Almennir miðar: 2.900 : Almennir stúkumiðar í hefðbundinni handboltastúku og gildir "fyrstur kemur fyrstur fær" í þessi sæti, athugið að hringurinn er fyrir miðjum sal þar sem allur salurinn er í notkun í fyrsta sinn þannig að það skiptir miklu máli að mæta tímanlega og ná sínu drauma sæti í almennri stúku. Uppselt hefur verið á síðustu Icebox viðburði í öll sæti og engin ástæða til að bíða fram á síðustu stundu.

Betri Stúkan: 6.900kr. Mjög takmarkað magn sæta í afmörkuðum auka stúkum beint fyrir aftan Ringside VIP sætin þar sem sætaröðin er hækkuð upp og horft beint yfir Ringside VIP sætin, mun stærra svæði en síðast og afmörkuð sæti með baki fyrir hvern og einn. Þessir miðar hafa alltaf selst upp og gildir "fyrstur kemur fyrstur fær" í þessi sæti en öll þessi sæti eru á besta stað og öll mjög góð.

RINGSIDE VIP: 19.900kr Hér eru bestu sætin í húsinu, afmörkuð við hringinn og innifalinn matur á lúxus smáréttahlaðborði á efri hæðinni í lokuðum sal og óáfengir drykkir en allt þetta er einungis fyrir keppendur og þá sem sitja í RINGSIDE VIP. Þessir miðar hafa alltaf selst upp á síðastu viðburðum. Hér gildir einnig "fyrstur kemur fyrstur fær" en það eru einungis fá svona sæti í sölu og öll alveg upp við hringinn á öllum hliðum. Með þessum miðum er einnig sérinngangur bæði inn í Kaplakrika sem og inn í keppnissal.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger