Emmsjé Gauti á trúnó - tónleikar/uppistand

Hljómahöll

30 October

Ticket prices from

ISK 7,900

Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, er einn allra vinsælasti tónlistarmaður landsins. Hann steig fyrst fram með breiðskífunni Bara ég árið 2011 og hefur síðan þá gefið út ótal smelli og tryggt sér sess sem einn af stærstu nöfnum íslenskrar tónlistar.

Gauti hefur undanfarið komið fram í uppistandssýningunni Púðursykri, þar sem hann stígur á svið ásamt þekktum grínistum á borð við Ara Eldjárn, Birni Braga, Sögu Garðars og fleirum. Gauti hefur sjálfur talað um að trúnó-tónleikaröðin hafi gefið honum kjarkinn í að taka þátt í uppistandi í fyrsta sinn, en árið 2023 kom hann fyrst fram á trúnó í Hljómahöll og opnaði sig þá alveg fyrir áhorfendum og sló rækilega í gegn.

Emmsjé Gauti hefur gefið út níu breiðskífur:

  • Bara ég (2011)

  • Þeyr (2013)

  • Vagg & Velta (2016)

  • Sautjándi nóvember (2016)

  • FIMM (2018)

  • Bleikt Ský (2020)

  • MOLD (2021)

  • Fullkominn dagur til að kveikja í sér (2024)

  • STÉTTIN (2025)

Því er á nógu að taka þegar hann stígur á stokk í Hljómahöll á trúnó í annað sinn og má gera ráð fyrir mikilli orku, nánd og stemningu!

Á trúnó-tónleikum í Hljómahöll fá gestir að upplifa mikla nánd við listamennina. Tónleikarnir fara fram í Bergi sem rúmar um 100 gesti og er þó engu til sparað þegar kemur að hljóðgæðum eða lýsingu á tónleikunum. Mætti jafnvel lýsa þeim sem stórtónleikum í litlum sal.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger