Annar í jólum ball með Alles Okei?

Sviðið, Selfossi

26 December

Ticket prices from

ISK 3,990

Annar í jólum ball með Alles Okei?

Ef þú ert að leita að balli þar sem enginn situr kyrr og dansgólfið nötrar frá fyrsta lagi til þess síðasta, þá er Alles Ókei hljómsveitin fyrir þig.

Með sprenghlaðna orku, ómótstæðilegt stuð og lög sem allir geta sungið með, tryggja þeir að kvöldið verði ógleymanlegt, alvöru partý frá byrjun til enda.

Alles Ókei hefur á stuttum tíma orðið eitt heitasta ball band landsins, og það kemur okkur ekki á óvart. Þau hafa lagt undir sig sveitaböll, stórhátíðir og helstu viðburði landsins, þar á meðal Þjóðhátíð og Ljósanótt, og hvert sem þau mæta er sama sagan: húsið fyllist, dansinn færist upp á borð og stemningin fer á eitthvað stig sem við öll elskum. Þetta er fullkomið tækifæri til að sleppa sér með vinum, njóta góðra drykkja og lifa sig inn í stemninguna sem fær alla til að gleyma sér í gleðinni. Útsendari Sviðsins fór nýlega á ball með Alles Ókei og var enn með harðsperrur tveimur dögum á eftir, það segir allt sem segja þarf.

Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger