Framtíðardagur KPMG

Gróska - Fyrirlestrarsalur

9 October

Ticket prices from

ISK 24,900

KPMG býður stjórnendum í viðskiptalífinu á Íslandi til ráðstefnu í Grósku fimmtudaginn 9. október kl.13:00 – 17:00.

Stjórnendur standa í dag frammi fyrir tækifærum og áskorunum sem hafa mikil áhrif á viðskiptalífið til framtíðar. Á Framtíðardegi KPMG munu sérfræðingar okkar ásamt erlendum fyrirlesurum og leiðtogum stærstu fyrirtækja landsins ræða þessi málefni. Með áhugaverðum erindum, samtölum við sérfræðinga og pallborðsumræðum munum við ræða um framtíðarsýn stjórnenda bæði á Íslandi og á heimsvísu, þá þróun sem á sér nú stað í alþjóðamálum að ógleymdri tækniþróun og þeim tækifærum sem í henni felast. Margrét Pétursdóttir, löggiltur endurskoðandi og partner hjá KPMG fer með fundarstjórn. Kynntu þér dagskrá og fyrirlesara nánar hér fyrir neðan. 

  • 12:30 – Húsið opnað

  • 13:00 – Fyrirlestrar og pallborðsumræður

  • 15:00 – Kaffihlé

  • 15:30 – Fyrirlestrar

  • 17:00 – Ráðstefnulok. Boðið uppá léttar veitingar

Dagskrá 

Global Geopolitical update: Gathering storms and bright spots, future scenarios for business and trade

Stefano Moritsch, Global Geopolitics Lead hjá KPMG og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, alþingismaður og fyrrverandi utanríkisráðherra

Í starfi sínu hjá KPMG leitast Stefano við að aðstoða fyrirtæki og stjórnvöld við takast á við þær áskoranir sem fylgja þróun í alþjóðastjórnmálum á hverjum tíma. Stefano leggur áherslu á að greina lykilstrauma í stjórnmálum á alþjóðlegum vettvangi og tengja þær við brýnar áskoranir í mismunandi atvinnugreinum. Stefano hefur bakgrunn í alþjóðasamskiptum, samskiptum á diplómatískum vettvangi og alþjóðalögum og býr yfir margra ára reynslu í stjórnunarráðgjöf í Ástralíu, þar sem hann hefur aðstoðað fyrirtæki og stjórnvöld við að rata um flókið alþjóðlegt regluumhverfi. Þórdís Kolbrún leiðir umræðu við Stefano Moritsch eftir erindi hans um þróun alþjóðamála.

Framtíðarsýn íslenskra og alþjóðlegra stjórnenda

Helgi Rafn Helgason, ráðgjafi hjá KPMG á Íslandi

Á hverju ári gerir KPMG alþjóðlega viðhorfskönnun, KPMG CEO Outlook, meðal forstjóra stærstu fyrirtækja í heimi í samstarfi við Forbes. KPMG á Íslandi gerir nú í fyrsta sinn álíka könnun meðal stjórnenda íslenskra fyrirtækja. Helgi Rafn mun draga fram áhugaverðustu niðurstöður beggja kannana og bera saman helstu áhersluþætti og framtíðarsýn íslenskra og alþjóðlegra stjórnenda.

Pallborðsumræður: Tækifæri og áskoranir framtíðarinnar

Svanbjörn Thoroddsen, sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG á Íslandi leiðir pallborðsumræður meðal stjórnenda í íslensku viðskiptalífi

Þáttakendur í pallborði verða þau:

  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion Banka

  • Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair

  • María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans

Þurfum við að endurhugsa framtíðina?

Gísli Ragnar Guðmundsson og Sylvía Rut Vilhjálmsdóttir verkefnastjórar hjá KPMG á Íslandi

Tækni er ekki bara verkfæri til að gera sama hlutinn hraðar en áður og spara tíma. Þau Gísli og Sylvía ræða við okkur um hvernig við getum nýtt tækni sem afl til að endurhugsa rekstur, finna nýjar tekjulindir og skapa virði sem áður var ómögulegt.

A Challenge From the Universe: Know Your Power

Dr. Michelle Thaller, stjörnufræðingur, fyrirlesari og fyrrum yfirmaður hjá NASA

Við stöndum frammi fyrir krefjandi áskorunum í heiminum í dag: Loftslagsmál, alþjóðastjórnmál, menning og tækni taka hröðum breytingum og verða endurskilgreind á næstu árum. Það er auðvelt að finna fyrir smæð og vanmætti. En kannski þarf að breyta sjónarhorni okkar út frá stjörnufræði og horfa á málin út frá því hvaðan við raunverulega komum. Með því að muna hvaðan við komum og þekkja mátt okkar getum við tekist á við framtíðina saman!

Dr. Michelle Thaller er alþjóðlega viðurkenndur stjörnufræðingur og fræðslufulltrúi í vísindum. Hún lét nýverið af störfum hjá NASA eftir 27 ára starf, þar sem hún lauk ferlinum sem aðstoðarforstöðumaður vísinda hjá stærstu starfsstöð NASA, Goddard Space Flight Center í Washington, D.C. Hún hefur komið fram í beinum útsendingum NASA, til dæmis við geimskot James Webb geimsjónaukans, og úr sjónvarpsþáttum á borð við How the Universe Works og NOVA. Michelle hefur birt fjölda vísindagreina um bæði stjörnufræði og vísindamiðlun, og hlotið fjölmörg verðlaun fyrir vefmiðlaefni um vísindi. Árið 2025 hlaut hún Exceptional Achievement Medal frá NASA, sem er æðsta heiðursmerki stofnunarinnar. Í dag starfar Michelle með Smithsonian-stofnuninni við fræðslustörf, auk þess að vera aðjúnkt við Wisconsin-háskóla.

Sjá dagskrá á vefsíðu KPMG: https://kpmg.com/is/is/home/events/2025/09/framtidardagur-kpmg.html

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger