© 2025 Tix Ticketing
Salurinn
•
15 September
Ticket prices from
ISK 2,500
VAKA þjóðlistahátíð: Opnunartónleikar 15. september
Úrvalskvæðamenn úr Kvæðamannafélaginu Iðunni koma fram á þessum opnunartónleikum VÖKU þjóðlistahátíðar. Þau munu kveða vísur úr nýjum rímum og fornum. Meðal annars verða frumfluttir tveir nýir rímnaflokkar. Rímnalögin sem hljóma koma aðallega úr safni Kvæðamannafélagsins Iðunnar en einnig úr ýmsum áttum.
Ásta Sigríður Arnardóttir kveður vel valdar fallegar vísur úr nýlegum rímum.
Þorsteinn Björnsson kveður vísur úr fornum rímum.
Bára Grímsdóttir kveður og flytur m.a. Kópavogsbrag hinn síðari, glænýjan rímnaflokk
eftir Sigurlín Hermannsdóttur, sem er sérstaklega saminn fyrir þessa tónleika.
Kristín Lárusdóttir flytur Læst í klaka af plötunni Kríu og Móðurjörð, mansöngur úr Númarímum eftir Sigurð Breiðfjörð. Hún kveður, leikur á selló og spilar raftónlist.
Rósa Jóhannesdóttir og fjölskylda kveða og frumflytja Gervigreind, nýjan rímnaflokk eftir Helga Zimsen.
Til gamans má geta að skáldkonan Sigurlín Hermannsdóttir og kvæðakonan,
sellóleikarinn og tónskáldið Kristín Lárusdóttir búa í Kópavogi.
Kynnir kvöldsins er Pétur Blöndal.
Aðgangseyrir 3.000 kr og 2.500 kr fyrir eldriborgara, öryrkja og börn.
VAKA þjóðlistahátíð 2025 fagnar lifandi hefðum dagana 15. - 21. september með fjölbreyttum viðburðum fyrir alla fjölskylduna. Á VÖKU 2025 verður í boði að hlýða á marga helstu kvæðamenn Íslands, fræðast og njóta þjóðlagatónlistar frá Íslandi og Noregi, kynna sér nýútgefin íslensk dans- og sönglög frá 19. öld, kynna sér íslenskt handverk fyrri alda sem og sækja erindi og fjölbreyttar vinnustofur um íslenska ljóðlist, íslenskt handverk, þjóðdansa, hljóðfæraleik og danstónlist frá Íslandi, Noregi og Kólumbíu. Boðið verður upp á fjölbreytta samveru í formi samsöngs, dans og samspils, og í lok hátíðar verður haldið málþing um alþýðuhljóðfæraleik í Reykjavík á fyrri öldum.
Allar upplýsingar um hátíðina má finna á www.vakareykjavik.is og á samfélagsmiðlum Vökufélagsins.