© 2025 Tix Ticketing
Akranes
•
25 October
Sale starts
5 September 2025 at 12:00
(in 1 week)
MIÐAHAFAR FÁ AFHENT ARMBÖND og prentaða dagskrá í gamla Arnardal (Kirkjubraut 48) á hátíðardag frá 13.00 – 17.00
HEIMA-SKAGI er tónlistarhátíð sem haldin er í tengslum við menningarhátíð Skagamanna - Vökudaga sem standa frá 23. október til 2. nóvember í ár.
Á HEIMA-SKAGA hátíðinni sem fer fram laugardaginn 25. október koma fram 13 listamenn/hljómsveitir sem spila tvisvar sinnum flestir í 12 mismunandi húsum. Eitt kvöld, 26 tónleikar í það heila í 12 húsum.
HEIMA-SKAGI leggur áherslu á alls konar músík – Popp -rokk – rapp – jazz – soul – folk – heimstónlist - klassík - og í raun hvað sem er, ef það er áhugavert og skemmtilegt.
Það er spilað í HEIMA-húsum Skagafólks;
Skólabraut 20 (Guðni og Lilja),
Vesturgata 45 (Kristján og Margrét),
Háteigur 6 (Angela og Benedikt),
Vesturgata 32 (Ingibjörg og Haraldur)
Háteigur 16 (Inga og Ketill)
Grundartún 8 (Elfa og Pálmi)
...en líka t.d í Bíóhöllinni, Í brugghúsi Bárunnar (Roð – Bárugata 21) í Akraneskirkju, og í einu af húsum fyrirtækisins KAPP (Skaginn) sem er einn af styrktaraðilum hátíðarinnar, á rakarastofu Hinna (sem er líkast til í minnsta húsi Akraness) – JÁ OG Í GAMLA ArnArdAl! (Kirkjubraut 48) Þar verða armböndin líka afhent á hátíðardag frá kl. 13.00-17.00 og þar verður ýmislegt skemmtilegt í gangi – matur og myndlist, POP-UP vinyl-markaður ofl.
HEIMA-SKAGI er einstök hátíð þar sem nándin við listafólkið er mjög mikil. Fyrsta HEIMA-SKAGA hátíðin var haldin 2019 með sex atriðum og það hefur alltaf selst upp.
Páll Óskar og Benni Hemm Hemm munu opna hátíðina á lágstemmdum nótum í kirkjunni klukkan 18.30 (ATH! KLUKKUSTUND FYRR EN Í FYRRA) þar sem hátíðin verður formlega sett með stuttri athöfn.
Síðan byrja tónleikar hér og Þar klukkan 19.00 og standa til 22.30.
Lokatónleikar HEIMA-SKAGA í ár verða í Bíóhöllinni frá 22.45-??
Miðasala hefst föstudaginn 5. september kl. 12.00 stundvíslega og þá verður dagskráin öll opinberuð.