Kvartett Freysteins

Iðnó Jazz

28 September

Ticket prices from

ISK 2,500

Kvartett Freysteins

Kvartett Freysteins ætlar að prufukeyra nýtt efni sem verður tekið upp í október. Nýlega skrifaði Freysteinn undir plötusamning við Protomaterial Records, útgáfu sem sérhæfir sig í sérstæðri og óhefðbundinni tónlist.

Í þessu verkefni er Freysteinn að stíga ný skref í sinni tónlistarsköpun. Hljómsveitin lofar ferskri nálgun með ríkulegum melódíum, sögum og ljóðrænum blæ þar sem ímyndunaraflið fær að njóta sín til fulls.

Freysteinn hefur hlotið lofsamlega dóma í erlendum miðlum og með kvartettinum sínum heldur hann áfram að þróa eigin hljóðheim.

Kvartettinn skipa:

  • Freysteinn Gíslason – kontrabassi

  • Hilmar Jensson – gítar

  • Óskar Kjartansson – trommur

  • Helgi R. Heiðarsson – tenórsaxófón

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger