© 2025 Tix Ticketing
Tjarnarbíó
•
7. - 21 December
Ticket prices from
ISK 5,900
Gegnum tíðina hefur Felix gefið Gunna sérlega góðar jólagjafir og þessi jól ætlar Gunni að launa vini sínum hugulsemina og gefa Felix bestu jólagjöf í heimi. Nú er gjöfin góða á leiðinni og bæði Gunni og Felix eru að farast úr spenningi rétt eins og öll börn sem bíða jólanna með fiðrildi í maganum.
Þá Gunna og Felix þarf sennilega ekki að kynna fyrir neinum enda hafa þeir glatt börn á öllum aldri í áratugi og verið brennandi í áhuga sínum og ástríðu fyrir barnamenningu. Nú bjóða þeir félagarnir börnum og fylgdarfólki á dásamlega jólastund í Tjarnarbíói, alla sunnudaga í desember.
Jól á náttfötunum var frumsýnd í Gaflaraleikhúsinu og hefur verið tvö ár í Borgarleikhúsinu en nú eru Gunni og Felix komnir í Tjarnabíó og lofa gleði, söng, gríni og spennu og síðast en ekki síst jólahuggulegheitum!