© 2025 Tix Ticketing
Sindrabær - Höfn í Hornafirði
•
1 November
Ticket prices from
ISK 7,990
Ég skal syngja fyrir þig
Einar Ágúst syngur ljóð Jónasar Friðriks við undirleik Gosanna frá Vestmannaeyjum. Fyrr á árinu gáfu þeir út endurgerð af laginu Dýrið gengur laust sem féll ansi vel í kramið hjá landanum.
Jónas Friðrik skildi eftir sig ótrúlegt safn texta og ljóða sem fyrir löngu hafa orðið þjóðargersemar. Hann samdi fyrir Ríó Tríó, B.G og Ingibjörgu, Björgvin Halldórsson o.fl. o.fl. ‘Ég skal syngja fyrir þig, Eina nótt, Tár í tómið, Ég er ennþá þessi asni sem þú kysstir þá, Gullvagninn og Góða ferð’ eru meðal þeirra laga sem flutt verða á tónleikunum.
Húsið opnar kl. 20.00 og tónleikar hefjast 21.00.
Það gleður okkur mjög að koma á Hornafjörð með þessa tónleika og hlökkum við til að sjá ykkur.
Silfurtún er skipuleggjandi tónleikanna