© 2025 Tix Ticketing
Langholtskirkja
•
18 October
Ticket prices from
ISK 2,500
Dýrin á Fróni & Psalm 42
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, söngkona, Helga Bryndís Helgadóttir, píanóleikari, Francisco Javier Jáuregui, gítarleikari og sex kórar flytja lög eftir Stefan Sand við vísur úr bókinni „Dýrin á Fróni – Myndskreyttar vísur um algeng íslensk dýr“ eftir Alfreð Guðmundsson.
Vísurnar lýsa íslenskum dýrategundum með fjölskrúðugum hætti og eru allar í bragarhætti sem nefnist langhenda. Fjölbreytt tónlist Stefans Sands glæðir textann lífi og heyra má meðal annars hvernig hundurinn Húni geysist um hlaðið á bóndabænum sem hann býr í og hvernig hænan Vala gaggar daginn út og inn.
Á tónleikunum munt þú því kynnast hve fjölbreytta tónlist er hægt að semja við vísur sem allar eru ortar í sama vísnaforminu og kynnast dýrategundunum með nýjum hætti í gegnum söng og hljóðfæraleik.
Búningar og sviðsmynd verða hönnuð og unnin í samvinnu við börn á grunnskólaaldri. Sú vinna fer fram í listasmiðjum sem leiddar verða af ÞYKJÓ.
Flytjendur eru:
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
Helga Bryndís Helgadóttir
Francisco Javier Jáuregui
Mótettukórinn
Hljómeyki
Kammerkórinn Tónar
Gradualekór Langholtskirkju
Graduale Liberi
Graduale Futuri
Á tónleikunum verður einnig flutt verk eftir Felix Mendelssohn: Psalm 42 fyrir píanó, sópran, strengjakvartett & kór. Mendelssohn himself described the piece as “my best sacred piece… the best thing I have composed in this manner”, a work “I hold in greater regard than most of my other compositions.”
Flytjendur eru:
Helga Bryndís Magnúsdóttir
Hallveig Rúnarsdóttir
Anna María Eiríksdóttir
Isabella Liv Sigurgeirsdottir
Hanna Kristín Stefánsdóttir
Jóhanna Rannveig Jánsdóttir
Mótettukórinn
Hljómeyki
Kammerkórinn Tónar
Stjórnandi er Stefan Sand.