Warmland

IÐNÓ

11 October

Ticket prices from

ISK 4,990

Warmland

Í fyrsta sinn síðan 2019 heldur hljómsveitin Warmland tónleika og í þetta sinn í Iðnó, laugardaginn 11. október næstkomandi

Warmland samanstendur af tvíeykinu Arnari Guðjónssyni og Hrafni Thoroddsen og var stofnuð þegar þeir félagar túruðu um Kína með hljómsveitinni Bang Gang. Kveikjan af stofnun hljómsveitarinnar varð til út frá sameiginlegum áhuga þeirra á poppi og raftónlist og brúnni þar á milli. Sveitin er þekkt fyrir að leggja upp úr sjónrænni upplifun á tónleikum og tengingu á milli þess hljóðræna og myndræna.

Eftir Warmland liggja plöturnar Unison Love (2019), sem inniheldur lög eins og Overboard og samnefnda lagið Unison Love og Modular Heart (2023) ásamt stuttskífunni Drops sem inniheldur fjögur lög og kom út fyrr á árinu. Lög eins og Superstar Minimal, The Very End of the End og My House eru dæmi um nýleg lög sem fengið hafa töluverða spilun hérlendis og erlendis, en nú leggur bandið drög að útgáfu nýrrar plötu sem kemur út á næstu misserum.

Aðdáendur sveitarinnar mega búast við lögum úr öllum áttum, bæði áður útgefnu og nýju efni sem heyrist í fyrsta sinn á sviðinu. Arnar Gíslason og Guðni Finnsson verða svo drengjunum innan halds og trausts ásamt meistaradeildinni í hljóði og ljósum.

Tryggðu þér miða í tæka tíð á þennan einstaka viðburð!

Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger