Líf og ástir kvenna || Jóna G. Kolbrúnardóttir, Hildigunnur Einarsdóttir & Þóra Kristín Gunnarsdóttir

Salurinn

21 September

Ticket prices from

ISK 3,900

Ljóðaflokkurinn Frauenliebe und Leben eftir Robert Schumann hefur löngum verið vinsæll meðal

flytjenda og áheyrenda. Ekki er að undra- tónlistin er undurfalleg og hittir beint í hjartastað.

Ímynd konunnar í ljóðum flokksins er þó heldur flöt og óspennandi, þar sem hún er einungis til

staðar til að elska manninn sinn og ala börn hans. Nú á dögum getur því verið vandasamt að

finna þessum ljóðaflokk viðeigandi stað í ljóðatónleikadagskrá. Svipað er uppi á teningnum með

ljóðaflokkinn Mädchenblumen eftir Richard Strauss - tónlistin er einstaklega heillandi en

konurnar eru hlutgerðar og líkt við blóm.

Á þessum tónleikum bjóðum við áheyrendum upp á að njóta þessara fallegu lagaflokka fyrir hlé.

Þar er horfið aftur í aldirnar - við setjum hlutina í samhengi og njótum tónlistarinnar með opnum

huga, því auðvitað var samfélagið á tímum Schumann og Strauss talsvert ólíkt okkar. Eftir hlé

kemur svo andsvarið frá Cheryl Frances-Hoad við ljóð Sophiu Hannah, eins konar

nútíma-útgáfa af Frauenliebe und Leben. Frances-Hoad varð fyrir miklum innblæstri af

Frauenliebe und Leben, tónlistin byggir á tónsmíðum Schumann og tengist þeim náið, en ljóðin

eftir Sophiu Hannah eru öllu nútímalegri og sýna ástarlíf konu í öðru ljósi.

Efnisskrá:

Richard Strauss: Mädchenblumen (Felix Dahn)

Robert Schumann: Frauenliebe und Leben (Adelbert von Chamisso)

Cheryl Frances-Hoad: One life stand (Sophia Hannah

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger