Jónsmessunæturdraumur

Tjarnarbíó

3 shows

Ticket prices from

ISK 5,900

„Ef satt skal segja þá eru skynsemi og ást ekki mikið í samfloti núorðið.“

Ungur og spennandi leikhópur tekur yfir Tjarnarbíó í haust og setur upp ástsælasta gamanleikrit

allra tíma; Jónsmessunæturdraum!

Djúpt inn í töfraskógi týnast fjórir ungir elskhugar á flótta og flækjast inn í stríð konungs og

drottningar álfanna ásamt leikhóp handverksmanna sem á sér einskis ills von. Tungsljósið og

döggin í bland við hugvíkkandi töfrasafa álfana snúa öllu á hvolf þessa örlagaríku

Jónsmessunótt.

Leikritið virkar létt og einfalt á yfirborðinu en undir niðri er það marglaga og djarft.

Það er einmitt ástæða þess að við rýnum alltaf aftur og aftur í verk Shakespeares, ekki bara

vegna þess að þau eru ‘klassík’, heldur vegna þess að þau vekja upp spurningar um mannlegt

eðli sem við erum enn að reyna að svara 430 árum seinna. Í Jónsmessunæturdraumi takast á

draum- sem og martraðakenndar hliðar ástarinnar, þrá og afbrýðisemi, kúgun og undirgefni,

stjórn og hömluleysi. Á einni sumarnóttu ferðumst við frá ramma borgarinnar út í frelsi villtrar

náttúrunnar, frá hatri til ástar, frá svefni til vöku.

Leyfðu grípandi gamanleik Shakespeares að töfra þig burt úr drunga haustsins yfir í

draumkennda Jónsmessunóttina.

Nánari lýsing:

Það styttist í brúðkaup konungshjónanna Hippólítu og Þeseifs í Aþenu þegar Egeifur óskar eftir

því að Hermía, dóttir sín, giftist Demetríusi. Hún vill hins vegar giftast Lýsander en báðir vilja þeir

hana. Eftir situr Helena með sárt ennið, en einu sinni elskaði Demetríus hana en nú vill hann

Hermíu. Lýsander og Hermía ákveða að flýja út í skóg og gifta sig þar sem lög Aþenu ná ekki

yfir, en Demetríus og Helena fylgja á eftir í von um að geta haft áhrif á hvernig fer. Á sama tíma

ákveður leikhópur handverksmanna að æfa leikrit í ró og næði í skóginum í von um að fá að

flytja það í brúðkaupinu. En í skóginum er ekki allt sem sýnist, og á einni Jónsmessunóttu á líf

þeirra allra eftir að breytast til frambúðar.

Leikhópurinn samanstendur af leikurum sem eru tiltölulega ný útskrifaðir úr leiklistarskóla bæði

hér og í Danmörku. María Ellingsen og Magnús Thorlacius leikstýra, sviðshreyfingar eru í

höndum Sóleyjar Ólafsdóttur, leikmynd og búningar hjá Írisi Ólafsdóttur og framleiðendur eru

Kristín Þorsteinsdóttir og Sigríður Halla Eiríksdóttir í samstarfi við Tjarnarbíó.

Aðstandendalisti:

Höfundur: William Shakespeare

Þýðing: Þórarinn Eldjárn

Leikstjórn: María Ellingsen og Magnús Thorlacius

Búningar og leikmyndahönnun: Íris Ólafsdóttir

Sviðshreyfingar: Sóley Ólafsdóttir

Tónlist og hljóðmynd: Áslaug María Dungal

Flytjendur:

Trýni/Snikki/Egeifur: Björk Guðmundsdóttir

Bossi: Fjölnir Gíslason

Hippolíta/Títanía: Heiðdís Hlynsdóttir

Þeseifur/Óberon: Jón Gunnar Vopnfjörð Ingólfsson

Demetríus: Killian G. E. Briansson

Lýsander: Vilberg Andri Pálsson

Helena:Kristín Þorsteinsdóttir

Smiddi: Níels Thibaud Girerd

Belgi: Óskar Snorri Óskarsson

Búkki: Rakel Ýr Stefánsdóttir

Hermía: Sigríður Halla Eiríksdóttir

Plakat og grafík: Katrín Hersisdóttir

Ljósmyndir: Christopher Lund

Framleiðandi: Silfurskeiðin, leikfélag

Framkvæmdastjórn: Kristín Þorsteinsdóttir og Sigríður Halla Eiríksdóttir

Sérstakar þakkir:

Hólmfríður Hafliðadóttir

Kristinn Óli Haraldsson

Tómas J Þorsteinsson

Tóma Rýmið

Te og kaffi

Eykt

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger