Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði?

Many venues

25. - 27 July

Ticket prices from

ISK 4,990

Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði?

— Uppistand tveggja miðaldra kvenna sem vissu betur

Þær eru miðaldra, með víðtæka reynslu — og fáránlega góða og filterlausa rödd á sviði.

Í sýningunni "Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði?" sameina Auðbjörg Ólafsdóttir og

Sóley Kristjánsdóttir krafta sína og leiða okkur í gegnum sprenghlægilegar hugleiðingar um

aldur, sjálfsmynd og hvernig það er að vera miðaldra í heimi sem dýrkar æsku og afneitar

seinni skeiðum lífsins.

Þær tala beint frá hjartanu um óskrifaðar reglur samfélagsins, gleðina við að taka pláss og brasi lífsins. Sýningin speglar reynslu okkar allra sem finnum okkur á þessum undarlega en ótrúlega skemmtilega stað á lífsleiðinni.

Þetta er kvöld fullt af krafti, kærleik og krassandi sjálfsskoðun.

Og þú vilt ekki missa af því.

Komdu, þú átt þetta kvöld skilið!

“Sóley og Auðbjörg voru það fyndnar að ég pissaði í mig úr hlátri!”

“Ótrúlega fyndin sýning! Efnistökin og brandararnir eru þannig á það er auðvelt að tengja við það úr okkar daglega lífi”.

“Frábær sýning, gjörsamlega grét úr hlátri!”

“Sóley og Auðbjörg eru gjörólíkar, en báðar óendanlega fyndnar, sjarmerandi og gera

stólpagrín að sjálfum sér, samfélaginu og sameiginlegum reynsluheimi kvenna.”

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger