© 2025 Tix Ticketing
Tjarnarbíó
•
2 shows
Ticket prices from
ISK 6,900




Sprenghlægilegt nýtt uppistand með Sóley Kristjáns og Auðbjörgu Ólafs þar sem þær velta fyrir sér öllu því sem konur þurfa bara …
Sóley og Auðbjörg eru miðaldra, þær eru á breytó og þær eru ferskari og fyndnari en nokkru sinni fyrr, enda konur með reynslu.
Sóley og Auðbjörg slógu í gegn í fyrra með afmælisuppistandssýningum sínum sem þær héldu báðar í fyrsta skiptið í sitthvoru lagi í. Sóley með “Að finna taktinn: Miðaldra uppistand” og Auðbjörg með “Ég elska þig alheimur”.
Þegar að þessar fyndnu, einlægu og ástríðufullu miðaldra fjölskyldu- og framakonur fréttu hvor af annarri ákváðu þær að sameina krafta sína og úr varð sýningin „Af hverju fórum við ekki bara á gönguskíði?“, sem hefur verið sýnd víða um landið við frábærar undirtektir.
Nú mæta þær aftur – með enn meiri reynslu í farteskinu og fjalla á sinn einstaka og einlæga hátt um allt það stórkostlega, hversdagslega og fyndna sem drífur á daga miðaldra fjölskyldu-og framakvenna sem þurfa bara að láta allt ganga upp.
Komdu og hlæðu með okkur í Tjarnarbíó, við lofum góðu kvöldi með æðislegum hlátri. Allt sem þú þarft að gera er að mæta.
Umsagnir um fyrri sýningu:
"Frábær sýning. Tárin láku í hlátursköstunum hjá vinkonuhópnum og við komum hundahreinsaðar út!"
"Ég fór á uppistand Auðbjargar og Sóleyjar og það fór langt fram úr væntingum – algjörlega frábær skemmtun! Þær draga fram húmorinn í hversdagslegum – jafnvel grafalvarlegum – atriðum með sjarma, sjálfsgagnrýni og einlægni. Útkoman er bæði hlátur og spegilmynd af lífinu – algjör snilld að geta hlegið saman að þessu. Mæli eindregið með!"
"Auðbjörg og Sóley eru kærkomin viðbót í uppistands flóruna. Ótrúlega fyndnar og hitta alveg í mark með gríni um sjálfa sig sem ég gat algjörlega speglað mig í."
"Frábært uppistand - tilvistarkreppu nútíma konunnar lýst af miklum húmor sem var beittur og ljúfur um leið - átti frábæra kvöldstund!!!"
"“Húmorinn hittir beint í mark – bráðfyndin sýning sem talar beint til konu! Mjög skemmtileg sýning”
„Geggjuð sýning! Þær ná fullkomlega að fanga það sem við konur á miðjum aldri erum flestar að fást við, og gera það á þann hátt að maður grenjar úr hlátri á sama tíma og maður fyllist aðdáun og samkennd með kynsystrum sínum.“
"Stórkostlegar, hreint út sagt, það er svo langt síðan ég hef hlegið svona mikið. Svo gaman að hlusta á þetta skoplega samhengi fjölskyldunnar og kvenna á breytó. Hittir beint í mark."

