Söngvar úr norðri og suðri

Salurinn

26 September

Ticket prices from

ISK 4,900

Föstudaginn 26. september næstkomandi munu Kristinn Sigmundsson, Kolbeinn Ketilsson halda tónleika í Salnum. Á dagskránni verða íslensk og erlend sönglög úr ýmsum áttum eftir Sigvalda Kaldalóns, Eyþór Stefánsson, Franz Schubert, Hugo Wolf, Francesco Paolo Tosti og Richard Wagner.

Kristinn Sigmundsson hefur haft söng að aðalstarfi síðan 1984. Fyrst hér heima, en frá árinu 1989

hefur hann að mestu starfað erlendis. Hann hefur komið fram í flestum stærstu óperuhúsum heims

og hefur sungið á annað hundrað óperuhlutverka, þar á meðal flest stærstu bassahlutverk

Wagners.

Kolbeinn Ketilsson hefur sungið mörg veigamestu tenórhlutverk óperubókmenntanna, m.a.

titilhlutverkin í Ævintýrum Hoffmanns, Don Carlo, Parsifal, Tristan, Rienzi, Tannhäuser og

Lohengrin. Hann hefur starfað með mörgum þekktustu hljómsveitarstjórum heims, m.a. Antonio

Pappano, Lorin Maazel, Kurt Masur, Kent Nagano og Zubin Metha. Auk þess að syngja í óperum

kemur Kolbeinn einnig reglulega fram á tónleikum sem ljóðasöngvari og einsöngvari í

hljómsveitarverkum.

Matthildur Anna Gísladóttir lauk bakkalárnámi í píanóleik frá Listaháskóla Íslands. Þaðan lá leiðin í

Royal Academy of Music í London þar sem hún lauk meistaranámi í meðleik árið 2009. Árið 2014

lauk Matthildur meistaranámi í óperuþjálfun frá Royal Conservatoire of Scotland (RCS). Þar var

hún á fullum skólastyrk og hlaut James H. Geddes Repetiteur verðlaunin. Matthildur hefur komið

fram á fjölda tónleika hérlendis sem erlendis og komið að óperuuppsetningum, m.a. hjá

Kammeróperunni, Óperudögum, Íslensku óperunni, British Youth Opera, RCS, Scottish Opera og

Lyric Opera Studio í Weimar. Matthildur starfar nú við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger