© 2025 Tix Ticketing
Bæjarbíó
•
1 November
Ticket prices from
ISK 7,990
Black Sabbath er frumkvöðla sveit þungarokksins. Hún var stofnuð í Birmingham á Englandi árið 1968 af þeim Tony Iommi (gítarleikara), Bill Ward (trommuleikara), Geezer Butler (bassaleikara) og söngvaranum Ozzy Osbourne. Sveitin hefur haft gríðarleg áhrif á rokksöguna og eftir hana liggja magnaðar plötur og ógleymanlegir slagarar.
Þann 5. júlí mun sveitin koma saman í hinsta sinn á Villa Park í Birmingham með öllum upprunalegu meðlimum – í fyrsta sinn í 20 ár. Ozzy og félagar ætla að segja það gott eftir þann viðburð.
Til að marka þessi tímamót verður haldin sérstök Black Sabbath-rokkmessa, þar sem sveitin verður heiðruð með flutningi allra helstu laga hennar frá löngum og áhrifamiklum ferli. Það eru engir nýgræðingar í rokkinu sem kallast til verksins – heldur meðlimir úr sveitum á borð við HAM, Brain Police, Ensími, 13 og Dr. Spock.
Heiðurssveitin:
Söngur: Jens Ólafsson
Gítar: Franz Gunnarsson
Trommur: Hallur Ingólfsson
Bassi: Flosi Þorgeirsson