© 2025 Tix Ticketing
Hljómahöll
•
9 August
Sale starts
23 June 2025 at 12:00
(in 1 day)
Það eru 10 ár síðan önnur plata Úlfur Úlfur, TVÆR PLÁNETUR, leit dagsins ljós og hristi upp í íslensku tónlistarlífi. Til að fagna þessum tímamótum ætla úlfarnir að koma fram á nokkrum vel völdum tónleikum sumarið 2025!
Á tónleikunum í Hljómahöll verða lögin spiluð, sögur rifjaðar upp og stemningin tekin á næsta level.
Þetta verður ógleymanleg kvöldstund fyrir alla sem hafa tengt við þessa plötu undanfarinn áratug.
Á trúnó-tónleikum í Hljómahöll fá gestir að upplifa mikla nánd við listamennina. Tónleikarnir fara fram í Bergi sem rúmar um 100 gesti og er þó engu til sparað þegar kemur að hljóðgæðum eða lýsingu á tónleikunum. Mætti jafnvel lýsa þeim sem stórtónleikum í litlum sal.
20 ára aldurstakmark. Yngri komast inn í fylgd með fullorðnum.
Sjáumst 9. ágúst!