© 2025 Tix Ticketing
Háaloftið Vestmannaeyjum
•
20 September
Ticket prices from
ISK 7,990
Hinn mjög svo goðsagnakenndi söngvari Bergsveinn Arilíusson, Beggi í Sóldögg, er Eyjamönnum kunnugur eftir hátt í 30 ár af heimsóknum á Eyjuna fögru. Hann hendir nú Sögustund / tónleika 20. september nk. á Háaloftinu og verður engu til sparað.
Ferill hans spannar nú yfir 36 ár. Alveg frá því að hann ásamt nokkrum villingum í Breiðholti stofnuðu rappsveit 1988, yfir í The Commitments uppfærslu Fjölbrautarskólans í Breiðholti í Sóldögg, sólóferil, Vini Vors og Blóma og Papana svo fátt eitt sé nefnt. Við erum að tala um 36 ár á böllum, tónleikum, uppfærslum og athöfnum, 130 gigg á ári með Sóldögg fyrir
aldamót….
Á Kvöldstund með Begga í Sóldögg fer Bergsveinn yfir ferilinn og flytur öll sín bestu… og næst bestu lög, fer yfir áhrifavalda og rifjar upp sögur af skemmtilegum meðreiðarsveinum af vígvellinum , endalausum sveitaballahringferðum og tónleikaferðum út um allar trissur.
Einlægir og skemmtilegir tónleikar sem þú mátt ekki missa af