Rokkland 30 ára

Menningarfélag Akureyrar

1 November

Sale starts

17 June 2025 at 12:00

(in 3 days)

Rokkland á Rás 2 á 30 ára afmæli í haust, og af því tilefni verður haldin afmælishátíð í Hofi á Akureyri og Rokkland sett á svið í samstarfi við SinfoniuNord.

Á tónleikunum ætla SinfoniaNord ásamt Todmobile bandinu og nokkrum af glæsilegustu söngvurum landsins að flytja helstu vörður popp og rokksögunnar – lög sem skipta máli og eiga það sameiginlegt að njóta sín vel í flutningi stórrar hljómsveitar - í bland við aðrar perlur.

Ólafur Páll, forseti Rokklands, valdi lögin í samstarfi við Þorvald Bjarna og meðal hljómsveita og listamanna sem eiga lög á efnisskránni eru Beatles, Björk, David Bowie, Neil Young, Led Zeppelin, E.L.O, U2, Iron Maiden, Sigur Rós, Queen ofl.

Allt á sér sögu, ekki síst músík og mun Ólafur Páll vera með á sviðinu og tengja þetta allt saman með stuttum kynningum og sögum.

Fyrsti Rokklands-þátturinn fór í loftið í 7. október 1995 sem gerir hann að langlífasta þættinum á dagskrá Rásar 2 og að einum elsta þætti í sögu útvarps á Íslandi. Það er helst að Kvöldgestir Jónasar Jónassonar eða djassþáttur Jóns Múla geti skákað Rokklandi þegar kemur að langlífi.

Sinfónískt rokk, epískt popp, eilíft folk og leyndarmálin á bakvið tjöldin = kvöld sem þú vilt líklegast ekki missa af?

ALLT ER BEST Í HOFI.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger