Tíbrá tónleikaárið 2025-2026

Salurinn

9 dates

Ticket prices from

ISK 3,900

Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleika formið.

Nú kynnir Salurinn nýja Tíbrárröð til leiks og má með sanni segja að starfsárið 2025 – 2026 verði glæsilegt, fjölbreytt og spennandi. Stór hópur tónlistarfólks í fremstu röð flytur litríka dagskrá þar sem hljómar splunkuný tónlist í bland við sígild meistaraverk og fáheyrðar perlur.

Allir tónleikar fara fram á sunnudögum klukkan 13:30 en á undan tónleikunum, klukkan 13:00, verður boðið upp á tónleikaspjall um viðfangsefni hverra tónleika.

50% afsláttur fæst af almennu miðaverði ef keypt er áskrift á alla tónleikana, aðeins 20.000 kr fyrir níu magnaða tónleika. Áskriftasölu lýkur 10.ágúst 2025. Keyptu áskrift hér.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger