© 2025 Tix Ticketing
Salurinn
•
23 November
Ticket prices from
ISK 3,900
Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleika formið.
Tónleikarnir bjóða uppá fjölbreytni í hljóðfærasamsetningu og efnisvali. Við fáum að heyra flautuna hljóma eina um allskonar undursamlega og spennandi tóna Atla Heimis Sveinssonar í Tónamínútum ásamt frumflutningi verksins „A day in nature“ eftir franska rísandi tónskáldið Corentin Boissier.
Að lokum heyrum við trio sónötu eftir risann Claude Debussy sem var skrifuð fyrir flautu, víólu og hörpu. Debussy samdi þessa sónötu árið 1915 á þeim tíma þegar hann þjáðist af krabbameini og á meðan Frakkland var enn í stríði við Þýskaland. Verkinu var ætlað að vera annað af sex, en hann lést áður en hægt var að klára fjögur síðustu. Debussy lýsti þessari sónötu sem "í fornu, sveigjanlegu formi án þess að vera mikilfengleg nútímasónata."