© 2025 Tix Ticketing
Afturámóti ehf
•
3 shows
Ticket prices from
ISK 4,990
Góðan daginn, faggi: sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur snýr aftur!
Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag.
Sýningin er morðfyndin og berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku sem þegar hefur verið sýnd yfir 140 sinnum í þremur löndum við frábærar undirtektir.
Góðan daginn, faggi var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2021 og sló þar í gegn. Sýningin fór síðan út fyrir landsteinana og sýndi á listahátíðinni Fringe í Edinborg. Nú snýr hún til baka og verður sýnd í Háskólabíói hjá Afturámóti í samstarfi við Stertabendu.
Leikari og höfundur:
Bjarni Snæbjörnsson
Leikstjóri og höfundur:
Gréta Kristín Ómarsdóttir
Tónskáld og flytjandi:
Axel Ingi Árnason
Salur: 2