© 2026 Tix Ticketing
Þjóðleikhúsið
•
5. - June 6
Ticket prices from
ISK 500




Leikhússkóli Þjóðleikhússins – Útskriftarsýning 2026
Útskriftarárgangur Leikhússkóla Þjóðleikhússins setur upp eigin leiksýningu, sem samanstendur af tveimur stuttum leikverkum eftir nemendur úr skólanum, og er hún að öllu leyti unnin og flutt af nemendum.
Nemendur leikhússkólans hafa á leikárinu fengið að kynnast starfsemi allra deilda Þjóðleikhússins sem og starfi listrænna stjórnenda við leiksýningar, og prófað sig áfram með þá kunnáttu sem þau hafa öðlast. Í síðasta hluta námsins verða nemendur að leikhóp þar sem þau setja saman sína eigin sýningu og ganga í öll störf sem uppsetning leiksýningar krefst.
Nemendahópurinn í ár vann tvö leikverk sem mynda útskriftarsýninguna. Nemendur sjá um framleiðslu, handritaskrif, leikstjórn, leikmynda- og búningahönnun, hljóðhönnun, ljósahönnun, dans- og sviðshreyfingar, sýningarstjórn og leik, undir handleiðslu kennara með stuðningi frá starfsfólki Þjóðleikhússins.
Þann 6. júní er uppskeruhátíð á Litla sviði Þjóðleikhússins við Lindargötu þar sem nemendur sýna afrakstur vinnu sinnar. Sýningin er flutt tvisvar á sama degi, kl. 14:00 og kl. 18:00 og tekur um eina og hálfa klukkustund með hléi.

