© 2025 Tix Ticketing
Iceland Symphony Orchestra
•
22 May
Sale starts
11 June 2025 at 10:00
(in 5 days)
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljómsveitarstjóri: Ross Jamie Collins
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Magnús Jóhann Ragnarsson skapað sér viðurkenningu sem óvenju fjölhæfur tónlistarmaður á flestum sviðum tónlistar; sem tónskáld, hljómborðsleikari og upptökustjóri. Hann hefur fengist við fjölbreyttar stefnur og stíltegundir í tónlist, allt frá innhverfum djassi, sígildum dægurlögum, ómstríðri strengjatónlist til framsækinnar raftónlistar. Hann hefur nú gefið út níu hljóðrit, sína eigin tónlist og í samstarfi við söngkonuna GDRN og djassleikarana Skúla Sverrisson og Óskar Guðjónsson. Magnús Jóhann var valinn tónlistarflytjandi ársins í opnum flokki á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023 og 2025. Á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands flytur Magnús Jóhann eigin tónlist í fjölbreyttum hljómsveitarútsetningum. Magnús leikur ekki eingöngu á píanó og hljómborð heldur hefur hann að undanförnu þjálfað sig í leik á hið dulmagnaða hljóðfæri Ondes Martenot sem fær einnig að njóta sín á þessum tónleikum.
Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir, án hlés.