Sigmar Matthíasson Band

Iðnó Jazz

15 June

Ticket prices from

ISK 2,000

Bassaleikarinn Sigmar Þór Matthíasson gaf út sína þriðju sóló plötu síðastliðið haust. Platan, sem nefnist "Uneven Equator", er einskonar rökrétt en þó sjálfstætt framhald af hans síðustu plötu "Meridian Metaphor", þar sem söngur og strengjahljóðfæri bætast við og stækka þannig hljóðheiminn - nútíma jazz sen blandast við austræna heimstónlist á frumlegan hátt.

Hljómsveit Sigmars hefur komið fram víða um land undanfarin 4 ár og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2022 sem Flytjandi ársins (hópar) í flokki Jazz & Blús tónlistar. Auk þess hlaut verkefnið nýverið tvennar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2025 fyrir plötu og tónverk ársins. Á tónleikunum í Iðnó mun hljómsveitin flytja efni af báðum áðurnefndum plötum. Að auki er ekki útilokað að glænýtt efni gæti fengið að hljóma.

Hljómsveit:

Ásgeir Ásgeirsson - oud

Haukur Gröndal - klarinett

Ingi Bjarni Skúlason - píanó

Magnús Trygvason Eliassen - trommur

Sigmar Þór Matthíasson - kontrabassi

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger