Nýtt eldhús eftir máli

Þjóðleikhúsið

11 shows

Ticket prices from

ISK 0

Draumaeldhúsið er dýru verði keypt
Stórskemmtilegt verk um hjónabandið, verkaskiptingu á heimilinu og karlmennsku á 21. öldinni

Daníel á sér draum um nýja eldhúsinnréttingu en þarf að yfirstíga margar hindranir til að hann rætist. Kona Daníels, Soffía, er honum ósammála um útfærslu framkvæmdarinnar, auk þess sem Daníel gleymir sér löngum stundum yfir kynórum um starfsfólk innréttingabúða. Og ekki bætir úr skák þegar búsáhöldin lifna við og leggja orð í belg. Það er reyndar ekkert að gömlu innréttingunni – hún er bara ljót. En það hangir mikið á spýtunni: hjónabandið, karlmennskan og tilveran öll. Nýtt eldhús eftir máli er gáskafullur og draumkenndur könnunarleiðangur um íslenskan hversdagsleika.

HÖNNUN OG HEIMILI – KARLMENN – BÚSÁHALDAHÚMOR 

Sýn Friðgeirs Einarssonar á hversdagsleikann er í senn næm, nöpur og fyndin. Hann hefur komið víða við í íslensku leikhúslífi síðustu ár, sem leikskáld, leikari og einn af meðlimum leikhópsins Kriðpleirs. Hann hefur sannað sig sem einn fremsti sviðslistamaður sinnar kynslóðar með sýningum á borð við Club Romantica, þótt aðferðirnar séu ekki alltaf eins og leikhúsgestir eiga að venjast, enda mörkin milli raunveruleika og skáldskapar ekki alltaf skýr.  

„Mig dreymdi í nótt að við hefðum fengið tilboð í nýja innréttingu.“ 

Nýtt eldhús eftir máli er fyrsta leikritið sem Friðgeir skrifar fyrir leikhóp Þjóðleikhússins. Það var flutt á leikritahátíð Þjóðleikhússins Gula dreglinum á liðnu vori. Björn Thors leikstýrði Grímusýningu ársins í fyrra, Saknaðarilmi.  

Leikarar: Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir og fleiri.

eftir Friðgeir Einarsson

Leikstjórn: Björn Thors
Leikmynd og búningar: Filippía I. Elísdóttir
Sviðshreyfingar: Margrét Bjarnadóttir

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger