Vísnabókin - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Iceland Symphony Orchestra

9 May

Sale starts

11 June 2025 at 10:00

(in 4 days)

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri: Hjörtur Páll Eggertsson

Sögumenn og söngvarar

Þórunn Arna Kristjánsdóttir

Hallgrímur Ólafsson

Sigurður Þór Óskarsson

Kórar

Graduale Futuri

Gradualekór Langholtskirkju

Myndskreyting

Halldór Pétursson

Lög úr Vísnabókinni Í útsetningu Hrafnkels Orra Egilssonar

Vísnabókin er klassísk gersemi sem fylgt hefur mörgum börnum og fullorðnum allt frá því að hún kom fyrst út árið 1946. Í bókinni er að finna úrval vísna og kvæða að ógleymdum myndskreytingum Halldórs Péturssonar. Á þessum fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands má heyra valin lög og syrpur í nýjum hljómsveitarútsetningum Hrafnkels Orra Egilssonar.

Hver kannast ekki við lög á borð við Siggi var úti, Ég á lítinn skrýtinn skugga, Fyrr var oft í koti kátt, Hann Tumi fer á fætur og Komdu kisa mín. Það eru leikararnir og söngvararnir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson og Hallgrímur Ólafsson sem koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt Gradualekórum Langholtskirkju. Teikningum Halldórs verður varpað upp á stóra tjaldið í Eldborg á meðan á tónleikunum stendur.

Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir, án hlés.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger