Sibelius & Beethoven - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Iceland Symphony Orchestra

20 November

Sale starts

11 June 2025 at 10:00

(in 4 days)

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri: Tomáš Hanus

Einleikari: Guido Sant‘Anna

Efnisskrá

Jean Sibelius Fiðlukonsert

Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 3, Eroica

Brasilíska ungstirnið Guido Sant’Anna heimsækir Ísland í fyrsta sinn og leikur einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands í hinum sívinsæla og glæsilega fiðlukonserti eftir Jean Sibelius. Sant’Anna skaust upp á stjörnuhimin fiðluleiksins þegar hann bar sigur úr býtum í Fritz Kreisler fiðlukeppninni árið 2022, fyrstur suður-amerískra fiðluleikara. Fáir einleikskonsertar eru jafn safaríkir og ástríðufullir og vinsældir verksins því auðskiljanlegar þegar hlýtt er á konsertinn.

Aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Tomáš Hanus, stjórnar 3. sinfóníu Beethovens á seinni hluta tónleikanna. Hetjusinfónían svokallaða markaði þáttaskil í tónlistarsögunni þegar hún var frumflutt árið 1805. Verkið var lengra og flóknara en áður hafði komið fram í heimi sinfónískrar tónlistar, tilfinningaleg dýpt þess var meiri og öll framvinda sinfóníunnar byltingarkennd. Fá verk eru jafn rækilega tengd þeim samtíma sem þau eru sprottin úr, tónskáldið tileinkaði verkið Napoleon Bonaparte en strikaði síðar yfir tileinkunina.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger