Frönsk veisla - Sinfóníuhljómsveit Íslands

Iceland Symphony Orchestra

16 October

Sale starts

11 June 2025 at 10:00

(in 4 days)

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Hljómsveitarstjóri og einleikari: Mail Broman

Efnisskrá

Louise Farrenc Forleikur nr. 1

Gabriel Fauré Svíta úr Pelléas et Mélisande

Maurice Ravel Tzigane

Jean-Philippe Rameau Svíta úr Hippolyte et Aricie

Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 31, Parísarsinfónían

Segja má að þessir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands séu franskur tónlistarkonfektkassi með ýmsum bragðtegundum. Þeir hefjast á forleik úr smiðju Louise Farrenc en verk hennar hafa verið mörgum tónlistarleg uppgötvun á síðustu árum. Forboðnar ástir Pelléas og Mélisande hafa heillað mörg tónskáld en Gabriel Fauré samdi fyrstur leikhústónlist við þetta fræga symbólíska leikrit eftir Maurice Maeterlinck skömmu eftir að það kom fram á sjónarsviðið fyrir aldamótin 1900.

Hljómsveitarstjórinn og einleikarinn Malin Broman leikur því næst hið blóðheita Tzigane eftir Ravel, mikið glæsiverk fyrir fiðlu, og leiðir hljómsveitina áfram í glæsilegri barokksvítu Rameaus og snarpri háklassískri Parísarsinfóníu Mozarts. Verkið samdi Mozart í borginni við Signubakka og stimplaði sig um leið rækilega inn í tónlistarlíf Parísar.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger