GDRN & Magnús Jóhann - Hvítasunnutónleikar í Bæjarkirkju

Bæjarkirkja - Borgarfirði

8 June

Ticket prices from

ISK 6,990

GDRN & Magnús Jóhann - Hvítasunnutónleikar í Bæjarkirkju

Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN og píanóleikarinn Magnús Jóhann Ragnarsson eru kunnug flestum landsmönnum eftir að hafa komið víða við í sinni tónlistarsköpun undanfarin ár. Hljómplata þeirra, Tíu íslensk sönglög, sló rækilega í gegn við útgáfu hennar árið 2022 og síðustu jól vakti jólaplata þeirra mikla lukku landans. Þann 8. júní halda þau tónleika í Bæjarkirkju í Borgarfirði þar sem þau hyggjast flytja efni af hljómplötum sínum í bland við eigin efni. Hér gefst einstakt tækifæri til að njóta náins flutnings þessara ástsælu tónlistarmanna þar sem notaleg stemning tónlistarinnar fær að njóta sín á fallegu íslensku sumarkvöldi.

Tónleikarnir hefjast kl 21 og kirkjan opnar hálftíma fyrr. Miðaverð er 6.990 kr.

GDRN hefur látið mikið á sér kræla í íslensku tónlistarlífi frá því að hún gaf út sína fyrstu breiðskífu, Hvað ef, árið 2018. Sú hljómplata hlaut fjölda tónlistarverðlauna, tilnefningu til tónlistarverðlauna norðurlanda og mikla athygli. Síðan þá hefur hún sent frá sér fjölda laga í samstarfi við aðra listamenn sem og tvær sólóplötur til viðbótar. GDRN, árið 2020 og Frá mér til þín, árið 2024. Auk tónlistarferilsins lék hún eitt aðahlutverkanna í Netflix seríunni Kötlu.

Magnús Jóhann Ragnarsson hefur verið mikilvirkur í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár sem píanóleikari, upptökustjóri, tónskáld og ýmislegt fleira fyrir fjölda listamanna. Hann hefur gefið út átta plötur undir eigin nafni og tvær stuttskífur. Hann var valinn tónlistarflytjandi ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2023 og 2025 og hefur undanfarið annast tónlistarstjórn í sjónvarpsþáttunum Idol. Bubbi Morthens, Friðrik Dór, Bríet, Ingibjörg Turchi, Skúli Sverrisson og Moses Hightower eru á meðal þess þverfaglega fjölda listafólks sem hann hefur starfað með.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger