© 2025 Tix Ticketing
Harpa
•
28 November
Sale starts
27 August 2025 at 10:00
(in 3 months)
Betlehem ehf kynnir: Vitringarnir 3 - 2025
Vinirnir, skemmtikraftarnir og söngvararnir Eyþór Ingi, Jógvan Hansen og Friðrik Ómar boða fagnaðarerindið á ný á aðventunni 2025. Vitringarnir 3 færa ykkur grín, grúv og gæsahúð með stórhljómsveit undir stjórn Ingvars Alfreðssonar og gestum.
„Við erum ennþá á bleiku skýi eftir viðtökurnar í fyrra. Gestirnir okkar tóku svo vel á móti okkur. Við erum spenntir að fylgja fyrstu sýningunni okkar eftir og vonumst til að hitta ykkur sem flest aftur á aðventunni 2025.”
Drengina þarf vart að kynna en þeir eru jú skemmtilega ólíkir, allskonar og hinsegin en umfram allt stórstjörnur í Klakksvík í Færeyjum og á Dalvík. Gestir mega eiga von á guðdómlegri blöndu af gamanefni og tónlist.
Forsala verður 22. ágúst kl. 10:00 fyrir þá sem skrá sig á póstlista Vitringanna á www.vitringarnir3.is
Fyrirspurnir og hópabókanir sendist á info@betlehem.is
Dagsetningar:
28. NÓV KL. 21:00
29. NÓV KL. 19:00
29. NÓV KL. 22:00
5. DES KL. 21:00
6. DES KL. 19:00
6. DES KL. 22:00
19. DES KL. 18:00
19. DES KL. 21:00
20. DES KL. 19:00
20. DES KL. 22:00