© 2025 Tix Ticketing
Félagsheimili Súgfirðinga
•
29 May
Ticket prices from
ISK 5,500
Skástu skrítlur Sóla Hólm
Skemmtikrafturinn Sóli Hólm ætlar að stíga á stokk í félagsheimi Súgfirðinga. Sóli hefur sett upp sex stór uppistandsverk sem tugir þúsunda Íslendinga hafa séð og á Suðureyri fer hann yfir sína skástu spretti á ferlinum, eins og hann orðar það sjálfur. Búast má við því að heyra raddir fjölmargra Íslendinga á sviðinu, jafnvel þó enginn þeirra sé í raun á staðnum, því eins og alþjóð veit getur Sóli brugðið sér í allra kvikinda líki. Sóla til halds og trausts verður Ísfirðingurinn Halldór Smárason en þeir félagar hafa komið Íslendingum í jólaskap undanfarin ár í Bæjarbíói í Hafnarfirði.
Ekki missa af Sóla Hólm og Halldóri Smárasyni á Suðureyri