© 2025 Tix Ticketing
Háskólabíó
•
16 June
Ticket prices from
ISK 7,990
Friðrik Dór verður með sína Árlegu Hittaramessu mánudaginn 16. júní.
Friðrik mun halda tónleika með öllu sínu besta fólki. Á boðstólnum verða öll helstu lög Friðriks Dórs, nýir hittarar í bland við gamla og aldrei að vita nema eitthvað nýtt efni læðist með.
Það er óhætt að lofa brjáluðum fagnaðarlátum.
Friðrik Dór er einn ástsælasti söngvari okkar Íslendinga. Lögin "Hlið við hlið", "Skál fyrir þér" og "Í síðasta skipti" eru löngu orðin staðalbúnaður í allar góðar veislur. Friðrik hefur frá árinu 2009 gefið út poppaða tónlist með sterkum r&b áhrifum við góðar undirtektir aðdáenda. Friðrik Dór á að baki sér fjórar breiðskífur sem hafa allar slegið í gegn.