© 2024 Tix Ticketing
Salurinn
•
2 March
Ticket prices from
ISK 4,250
The Icelandic Pop Orchestra verður á fjölum Salarins sunnudaginn 2. febrúar 2025. Þar flytur hljómsveitin sína eigin tónlist sem sprottin er úr sameiginlegum reynslubrunni, allt frá sjötta tug síðustu aldar.
Flestir félagar hljómsveitarinnar eru fyrir löngu að góðu kunnir. Flestir þekkja gítarleikarana Björn Thoroddsen og Tryggva Hübner sem þekkja alla hljóma gítarsins, hljómborðsleikararnir Pétur Hjaltested og Þórir Baldursson kunna meira en vel á Steinway og Hammond, og Jón Kristinn Cortez á bassa og Þorsteinn Gunnarsson á trommur, þessir nefndir sjá um undirliggjandi drifkraft.
Íris Sveinsdóttir, Lýður Árnason, Jón Rósmann og Þorvaldur Gylfason sjá um sönginn með hljómfagurri aðstoð Dagnýjar Hængsdóttur, Ástu Hrannar Ásgeirsdóttur og Agnesar Sólmundsdóttur. Einnig mæta gestasöngvarar á svið sem verður getið síðar.
Sviðsstjórnandi verður svo Vignir Jóhannsson, sérlegur listhönnuður hljómsveitarinnar.
Í maí 2024 fór hljómsveitin til hins víðfræga hljóðvers; Abbey Road Studio 2 í London, þar sem Bítlarnir tóku upp megnið af sinni tónlist. Með í farteskinu voru lög eftir hljómsveitarmeðlimi og voru þau hljóðrituð í þeim anda sem hljóðverið bauð upp á. Er óhætt að segja að menn og konur hafi sett hljóða um stund er inn var komið; hátt til lofts, vítt til veggja og Bítlaandinn alltumlykjandi. Var sem félagarnir bundust sterkari böndum þegar fyrstu tónarnir fóru ofan í hljóðnemana. Afrakstur þessarar ferðar mun hljóma í eyrum þeirra sem mæta á tónleikana.