© 2024 Tix Ticketing
Harpa
•
1 December
Þakkarorða íslenskrar tónlistar 1. desember í Hörpu:
Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið
Þakkarorða íslenskrar tónlistar verður veitt í fyrsta sinn í Hörpu með hátíðlegum og hljómfögrum hætti þann 1. desember á Degi íslenskrar tónlistar. Verðlaunin eru heiðursverðlaun nýstofnaðs Tónlistarráðs og er þeim ætlað að heiðra starf og sköpun þess listamanns er fyrir valinu verður og um leið bjóða landsmönnum upp á einstaka tónlistarveislu.
Tónlistarráð starfar samkvæmt tónlistarlögum er samþykkt voru 10. maí á Alþingi en hlutverk ráðsins er meðal annars að vera stjórnvöldum og Tónlistarmiðstöð til ráðgjafar um málefni tónlistar og taka þátt í stefnumótun Tónlistarmiðstöðvar og eflingu íslensks tónlistarlífs. Menningar- og viðskiptaráðherra skipar Tónlistarráð til þriggja ára en í því sitja m.a. fulltrúar Félags tónskálda og textahöfunda, Félags hljómplötuframleiðenda, Félags íslenskra hljómlistarmanna, STEFs, RÚV, Tónlistardeildar LHÍ, Tónlistarborgarinnar Reykjavík, auk 10 annarra hagaðila.
Eitt fyrsta verkefni Tónlistarráðs er tilnefning heiðurshafa Þakkarorðu íslenskrar tónlistar sem að þessu sinni hlotnast tónskáldinu og textahöfundinum ástsæla, Magnúsi Eiríkssyni. Af því tilefni verður efnt til glæsilegra heiðurstónleika í Eldborg í Hörpu kl. 20:00 þann 1.desember þar sem bestu lög Magnúsar verða flutt af mörgum af fremstu flytjendum landsins. Þeirra á meðal eru Bríet, Ragga Gísla, Pálmi Gunnarsson, Ellen Kristjáns, Mugison, KK og Valdimar Guðmundsson, auk einvala liðs hljóðfæraleikara undir stjórn tónlistarstjórans Eyþórs Gunnarssonar. Kynnar verða Jón Jónsson og Salka Sól.
Umsjón: Móðurfélagið ehf.