Svavar Knútur - Söngvaskáldatónleikar

Hjalli Kjós

22 November

Svavar Knútur söngvaskáld fagnar nú útgáfu á nýjustu plötu sinni, Ahoy! Side B, með tónleikum í hlöðunni á Hjalla í Kjós.

Samhliða Ahoy! Side B kemur út Tvöfaldur vínill, Ahoy!, þar sem Side B rennur saman við systurplötu sína Ahoy! Side A, sem kom út 2018. Loksins sameinaðar! Þetta er lokahluti 15 ára verkefnis Svavars Knúts um sorgarferlið með öllum tilheyrandi hólum og hæðum, dimmu dölum og björtu stjörnum.

Á tónleikunum mun Svavar Knútur syngja lög vítt og breitt af ferli sínum og segja sögur af ferðlögum, löndum og lýðum. Börn eru auðvitað velkomin í fylgd með foreldrum.

Aðgangseyrir er litlar kr. 3.500, en ókeypis er fyrir börn og unglinga undir 18 ára í fylgd með foreldrum eða afa/ömmu.

Dates

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger