Jólatónleikar Caudu Collective

Salurinn

6 December

Ticket prices from

ISK 4,900

Á jólatónleikum Caudu Collective verður flutt hátíðleg jólatónlist, ný og gömul, fyrir kammersveit og sönghóp.

Tónleikarnir hefjast á nýrri útgáfu kafla úr verkinu Adest Festum, sem þær Sigrún Harðardóttir, Þóra Margrét Sveinsdóttir og Þórdís Gerður Jónsdóttir, sömdu út frá stefjabrotum úr tíðasöngvum Þorláks helga. Þorlákur var biskup í Skálholti á 12. öld og eru Þorlákstíðir með elstu nótnahandritum sem varðveist hafa á Íslandi. 

Þá verður fluttur fyrsti af þremur þáttum úr óratoríunni Messías sem Händel skrifaði um líf og dauða Jesú. Fyrsti hlutinn er endursögn af jólaguðspjallinu og verður á þessum tónleikum fluttur af fjórum einsöngvurum, sem einnig syngja kórkaflana, auk lítillar kammersveitar. 

Í lok tónleikanna gefst gestum tækifæri til að syngja jólasálma ásamt einsöngvurunum við undirleik hljómsveitarinnar

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger