© 2024 Tix Ticketing
Hof
•
14 December
Miðar á tónleikana 20. desember í Eldborg fást hér
Jól í Hofi 14. desember og Jól í Eldborg 20. desember.
Búðu þig undir ógleymanlega stund á besta kvöldi aðventunnar.
Stórsöngkonurnar Margrét Eir, Hera Björk og Dísella munu flytja helstu jólaperlur Frostrósa á einstökum jólatónleikum bæði í Hofi og Eldborgarsal Hörpu. Öll umgjörð verður hin glæsilegasta og með þeim verða á sviði einvala hljómsveit, strengjasveit, dýrindis kórar og frábærir gestir. Má þar nefna þá Egil Árna tenor og Stefán Hilmarsson.
Kórar á tónleikunum í Hofi eru Karlakór Akureyrar, Kvennakór Akureyrar og Eldribarnakór Akureyrarkirkju.
Kórar í Eldborg eru Karlakórinn Þrestir, Kvennakór Kópavogs, Drengjakór Reykjavíkur og Skólakór Smáraskóla.
Tónlistarstjóri er Karl Olgeirsson, leikstjóri Birna Björnsdóttir og kórstjóri Þorsteinn Freyr Sigurðsson. Um bakraddir og gospelsöng norðan heiða og sunnan sér Raddsveitin Harpa.
Þær Heru og Margréti þarf vart að kynna. Þær hafa verið vinkonur í yfir 30 ár og eru þær söngkonur sem oftast heiðruðu svið Frostrósa. Í fyrra voru þær í forgrunni tónleikanna Jól í Eldborg sem slógu rækilega í gegn svo í ár var ákveðið að fara einnig með tónleikana norður í Hof og svo bætist Grammy verðlaunahafinn Dísella Lárusdóttir við en hún var ein af gestum tónleikanna í fyrra. Dísella kom fram með Frostrósum árin 2008 og 2011 þar sem hún skapaði ógleymanlegt augnablik er hún flutti dúett með Garðari Thór Cortes beint frá New York.
Þessar frábæru söngkonur ætla á ný að töfra fram einstök augnablik er þær leiða viðstadda inn í fallegan jólaheim. Flest okkar hér á Íslandi þekkjum Frostrósatónleikana sem haldnir voru ár hvert í 12 ár samfleytt frá 2002-1013. Yfir 30.000 manns sóttu tónleikana árlega þegar mest var og eigum við mörg þaðan ljúfar minningar. Lögin lifa áfram og hvert mannsbarn þekkir lög eins og Dansaðu vindur, Hugurinn fer hærra og Af álfum svo nokkur séu nefnd.
Sjáumst í hátíðarskapi í Hofi laugardaginn 14. desember eða í Eldborg 20. desember. Þetta verður sannkölluð veisla fyrir augu og eyru.
https://www.facebook.com/ frostrosir/ Fylgið Frostrósum á Facebook en þar verður hægt að skyggnast á bakvið tjöldin við undirbúning tónleikanna og rifjuð verða upp skemmtileg augnablik úr sögu Frostrósa.