Töfrabækurnar: Fóa og Fóa feykirófa

Many venues

6. - 27 October

Ticket prices from

ISK 3,000

Töfrabækurnar eru brúðuleikhússería fyrir yngstu börnin þar sem unnið er með þjóðsögur. Þegar bókin opnast breytist hún í leikmynd fyrir söguna og þær persónur sem koma fram verða tvívíðar brúður sem stjórnað verður ofan frá. Tveir leikarar stjórna brúðum og sjá um allan leik og lifandi tónlistarflutning. Þess má geta að sýningarnar eru ávallt afslappaðar þar sem kveikt er í salnum, ekki er notast við hljóðkerfi fyrir tal né tónlist og áhorfendum er velkomið að fara afsíðis af þau þurfa að hvíla sig. Þetta er því einstaklega aðgengilegt sem fyrsta leikhúsupplifun barna.

Fyrir ári síðan frumsýndu Umskiptingar fyrsta ævintýrið í Töfrabókunum. Það var Sagan af Gýpu og hefur hún síðan flakkað vítt og breitt um landið. Nú er komið að sögunni um Fóu og Fóu Feykirófu en hún fjallar um það þegar Fóa Feykirófa rekur Fóu úr hlýja, fallega hellinum sínum og sest þar sjálf að. Fóa veit ekki hvað skal til bragðs taka en vinir hennar, lambið, kindin, sauðurinn og hrúturinn bjóða öll fram hjálp sína að ná honum til baka. Það gengur þó ekki áfallalaust fyrir sig.

Leikstjóri sýningarinnar er Fanney Valsdóttir en hún sá jafnframt um gerð búninga. Leikarar eru Margrét Sverrisdóttir og María Pálsdóttir. Margrét sá jafnframt um gerð leikmyndar og brúðugerð. Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason eru höfundar tónlistar og framleiðandi er Jenný Lára Arnórsdóttir.

Töfrabókin, Fóa og Fóa Feykirófa, verður frumsýnd 6. október kl. 15:00 í Leikhúsinu á Möðruvöllum í Hörgársveit og verða sýningar þar á sunnudögum í október og fyrstu helgi í nóvember. Töfrabækurnar munu einnig ferðast um nærliggjandi sveitarfélög alla laugardaga í október og sýna á Kópaskeri, Húsavík, Þingeyjarsveit, Dalvík og Siglufirði. Eftir sýningar verður boðið upp á föndur þar sem meðal annars verður hægt að sjá hvernig hægt er að gera sína eigin Fóu-grímu. Þá verður hægt að fá sér kaffi og kruðerí á meðan börnin föndra.

Frekari upplýsingar má finna á samfélagsmiðlum Umkskiptinga:

Facebook: www.facebook.com/umskiptingar

Instagram: www.instagram.com/umskiptingar.leikhopur/

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger