Fiskidagstónleikarnir 2025

Harpa

22 February

Ticket prices from

ISK 5,990

Fáir eða nokkrir tónleikar á Íslandi hafa hlotið jafn fádæma lof og Fiskidagstónleikarnir sem haldnir hafa verið á Dalvík í tilefni Fiskidagsins Mikla.

Talið er að samanlagt hafi um 200 þúsund manns séð tónleikana árin 2013-2023. Fjölmargir listamenn hafa komið fram á tónleikunum og búið til dýrmætar minningar fyrir tónleikagesti á Dalvík. Nú hefur verið ákveðið að koma saman í Eldborg 22. febrúar 2025 og blása til Fiskidagstónleika með hljómsveit Rigg viðburða undir stjórn Ingvars Alfreðssonar ásamt frábærum gestum.

Dalvíkingurinn Friðrik Ómar hefur haft veg og vanda að tónleikunum og verður þar engin breyting á. Friðrik verður gestgjafi tónleikana en Eyþór Ingi og Matti Matt verða ekki langt undan auk fábærra gesta sem bæði hafa stigið áður á svið Fiskidagsins og aðrir sem munu gera það í fyrsta sinn. Við færum landslagið á Dalvík í Eldborg með hjálp tækninnar og getum sem fyrr lofað stórkostlegu veðri.

Þetta verður tónlistarveisla og ekki síst frábær stund þar sem við minnumst þeirrar stórkostlegu hátíðar sem Fiskidagurinn Mikli á Dalvík var.

Athugið: Veitingastaðirnir í Hörpu, La Primavera og Hnoss verða með áherslu á sjávarfang og auðvitað fiskisúpu á matseðlinum þennan dag í tilefni tónleikanna.Það er víst að tónleikarnir verða enn betri með smá fisk í maga!

Framleiðandi: Rigg viðburðir.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger