Ég heyri þig hugsa | Tíbrá

Salurinn

26 January

Ticket prices from

ISK 3,900

Tónlist Skúla Sverrissonar er í forgrunni þessara tónleika en Skúli á að baki magnaðan feril sem tónskáld og bassaleikari. Tónlist Skúla býr yfir tærum einfaldleika sem höfðar til breiðs hlustendahóps en nýstárleg meðhöndlun hans á hljómum, takti og laglínum gerir verkin jafnframt einstaklega bitastæð og djúp.

Hljóðheimur Skúla er stór, allt að því sinfónískur, og hentar því hlýjum og voldugum hljóðheimi Salarins einstaklega vel. Hér stígur Skúli fram ásamt tveimur af sínum nánustu samstarfsmönnum, þeim Ólöfu Arnalds og Davíð Þór Jónssyni sem bæði eru í hópi fjölhæfustu tónlistarmanna landsins.

Ný tónlist eftir Skúla Sverrisson við ljóð Ólafar Arnalds. Flytjendur auk Skúla eru þau Davíð Þór Jónsson og Ólöf Arnalds.

Tónleikarnir eru styrktir af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger