Fíasól

Reykjavík City Theatre

4 dates

Ticket prices from

ISK 6,500

Barnasýning ársins á Sögum 2024

Fíasól gefst aldrei upp snýr nú aftur á Stóra sviðið ásamt öllum barnahópnum í þessari vinsælu fjölskyldusýningu sem gekk fyrir fullu húsi á síðasta leikári, hlaut fjórar tilnefningar til Grímunnar og fern verðlaun á Sögum, verðlaunahátíð barnanna, þar á meðal fyrir Barnasýningu ársins.

Hún er óstöðvandi gleðisprengja, full af orku en stundum löt, skarpgreind en fljótfær og svo hugmyndarík að foreldrum hennar stendur hreinlega ekki alltaf á sama. Stelpuskottið Fíasól er fyrir löngu orðin sígild í íslenskri barnabókmenntasögu og á sér aðdáendur á öllum aldri. Hér stígur hún aftur á Stóra sviðið í Borgarleikhúsinu í nýrri leikgerð sem byggir á rómuðum skáldverkum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur.

Leikstjórinn Þórunn Arna Kristjánsdóttir leiðir úrvalslið leikara og magnaðan barnahóp í fjölskyldusöngleik með frumsaminni tónlist hins góðkunna Braga Valdimars Skúlasonar.

Höfundur: Kristín Helga Gunnarsdóttir

Leikgerð: Maríanna Clara Lúthersdóttir og Þórunn Arna Kristjánsdóttir

Tónlist og söngtextar: Bragi Valdimar Skúlason

Leikstjórn: Þórunn Arna Kristjánsdóttir

Danshöfundur: Valgerður Rúnarsdóttir

Tónlistarstjórn: Karl Olgeirsson

Leikmynd: Eva Signý Berger

Búningar: Júlíanna Lára Steingrímsdóttir

Lýsing: Pálmi Jónsson

Hljóðmynd: Þorbjörn Steingrímsson

Leikgervi: Elín S. Gísladóttir

Leikarar:

Birna Pétursdóttir, Halldór Gylfason, Íris Tanja Flygenring, Jörundur Ragnarsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Sigurður Ingvarsson, Vilhelm Neto, Auðunn Sölvi Hugason, Auður Óttarsdóttir, Bríet Sóley Valgeirsdóttir, Garðar Eyberg Arason, Guðmundur Brynjar Bergsson, Guðný Þórarinsdóttir, Gunnar Erik Snorrason, Heiðrún Han Duong, Hildur Kristín Kristjánsdóttir, Hlynur Atli Harðarson, Jakob Steinsen, Kolbrún Helga Friðriksdóttir, Kristín Þórdís Guðjónsdóttir, Oktavía Gunnarsdóttir, Óttar Kjerulf Þorvarðarson, Rafney Birna Guðmundsdóttir, Rebecca Lív Biraghi, Sigurður Hilmar Brynjólfsson, Stormur Björnsson, Viktoría Dalitso Þráinsdóttir, Þyrí Úlfsdóttir

Tónlist úr sýningunni

Myndir úr sýningunni

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger