Vínskólinn á Spritz

Spritz Venue

7 dates

Ticket prices from

ISK 11,990

Vínskólinn á Spritz er líflegt vínnámskeið þar sem fólk lærir

undirstöðuatriðin um vín á einni kvöldstund. Námskeiðið er létt og

skemmtilegt og hentar bæði byrjendum og lengra komnum.

Það fylgir charcuterie bakki með ostum, súrdeigsbrauði og salami.

Námskeiðið er haldið á Spritz Venue, Rauðarárstíg 27 og tekur um það

bil 2.5 klst.

Það verða að lágmarki 6 að bóka svo námskeið sé haldið og það eru 16 sæti í boði.

Námskeiðin eru tvennskonar:

Vínskólinn

Á námskeiðinu förum yfir það hvernig vín verður til, hvernig á að para

það með mat, hvernig á að þekkja þessar helstu þrúgur og smökkum saman

7 mismunandi sérvalin vín.

Kennari námskeiðsins er sommelierinn (vínsérfræðingurinn) Lyne sem

hefur annast vínprógrammið á margrómaða vínbarnum Port 9.

Ítölsk vín

Á námskeiðinu förum yfir ítölsk vín, hvað gerir þau sérstök og lærum

að skilja ítalska vínmenningu. Við smökkum saman 7 mismunandi sérvalin

vín frá allri Ítalíu.

Kennari námskeiðsins er sommelierinn (vínsérfræðingurinn) Lyne sem

hefur annast vínprógrammið á margrómaða vínbarnum Port 9.

Fylgist með gangi mála á Facebook og Instagram síðu Vínskólans á Spritz!

Við hlökkum til að taka á móti þér!

Gift cards for all occasions

Give an event of your choice

Buy a gift card

New events and offers for you every week

Join the mailing list

Sign up
Messenger